Úrvals kennaraefni

Er einhver hér úr Aðaldal?

25.09.2007 23:49:15 / diffrun

Hvað er að frétta fólk?

Hvað segir liðið? Hvað eru allir að gera núna eftir útskrift?? Ég er voða forvitin og langar að vita hvað allir eru að gera. Sjálf er ég að vinna á leikskóla sem heitir Furugrund í Kópavogi og skrifaði undir samning í ár hjá þeim.

Endilega kommentið og segjið frá...

Kveðja, Halla 8) 


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.05.2007 00:46:55 / diffrun

Stemmari fyrir útskriftarhátíð??

Hvað segið þið, eru margir sem ætla að mæta á hátíðarkvöldverðinn þann 9. júní?? Ég (Halla) hef áhuga á að mæta auk Elínar og Möggu. Það væri nú gaman ef að fólk myndi mæta á þetta, þó ekki væri nema að að mæta eftir borðhald. Annars var það ekki fleira, vildi bara hefja máls á þessu. Hafið það gott elskurnar, yfir og út!

Hallan 


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.05.2007 13:35:58 / diffrun

það var bara stemmning...

Takk fyrir skemmtilega kvöldstund, þetta var nú bara vel heppnað, snilld að dást að gömlum myndum af okkur og ekki verra að fá óvæntan einsöng hjá Arnari:D ...og svo náttúrulega gaman að syngja nýja Eurovisjónlagið :lol::lol:

 

...svo bíður maður bara eftir því að fá úr því skorið hvort maður útskrifist, ef svo heppilega vill til að ég geri það þá mun ég sjá ykkur hin, sem einnig voru svo heppin, á útskriftinni. ...ætli maður fái ekki að vita eitthvað nánar hvert og hvenær á að mæta, við hljótum að þurfa að mæta eitthvað fyrr og svona...:$

 

sí jú leiter:P:lol:

 

kv

ELín HUlda;)

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.05.2007 12:17:24 / diffrun

kvöldvakan í kvöld

já það er víst kominn föstudagurinn sem allir hafa beðið eftir...:lol: ef fólk á að hittast er réttara að nefna stað og stund svo fólk hittist á sama staðnum á sama tíma :D:P

 

mæting í KB banka kl 18:00:!::!:

mæting til Arnars strax eftir Kbbanka (hann býr í Drekagili, veit ekki hvaða hæð og íbúð, þetta eru einungis 7 hæðir og 3 íbúðir á hverri hæð þannig að þið ættuð að vera fljót að finna þetta :) arnar vonandi setur hér inn hvar hann á eiginlega heima:$)

 

Mér heyrist vera orðin mikil stemmning/stemming fyrir þessu og þá er ekkert annað eftir nema að bíða eftir því að hringt verði inn hátíðina kl 18 í kvöld.

 

hlakka til að sjá ykkur:haha:

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

08.05.2007 22:45:11 / diffrun

góðan og blessaðannn ! allir hressir eftir prófin

Reyndi að senda sms á þá sem ég fann á stefaníu, eflaust hef ég gleymt einhverjum og endilega þá látið þetta berast, þ.e.a.s. innan ,,bekkjar,, Það verður semsagt partý næsta föstudagskvöld. Annaðhvort verður staðurinn Þingvallastrætið góða eða Heimili Arnars ef heimilismeðlimir leyfa og sófasett verða enn í íbúðinni. ...EN áður en við hittumst það býð ég ykkur hér með í snittur og drykki í KB banka á undan (kl 18 held ég, annars verður sett auglýsing um það inn á FSHA magister, reyndar er kumpáni að bjóða okkur með sér en ekki ég, kannski einhverjir sem voru búnir að fatta það)  Dagskrá kvöldsins er: -         atriði frá arnari ( arnar er búinn að vera mjög virkur seinustu daga og ætlar hann að sýna afraksturinn, ef til vill hellir arnar upp á helling af kaffi og mottóið er að hafa það bara nógu mikið og nógu sterkt) -         atriði frá mögnu ( man ekki hvað það var en hún finnur upp á einhverju sniðugu)  -         atriði frá huldu, höllu og mér (elínuhuldu)  -         rúnar sigþórs með uppistand um fámenna skóla -         geir kíkir í kaffi -         paulo freire heldur fyrirlestur um kennslu sem felur í sér nám -         sókrates kemur og ,,böggar,, fólk -         ómar ragnarson kynnir flokkinn sinn -         svo má endilega koma með eigin atriði og jafnvel sýna myndir (ef einhver á td af okkur á fyrsta ári eða annað slíkt, ætla að redda skjávarpa og því snilld að útbúa eitthvað)  

ÞETTA VERÐUR Á FÖSTUDAGSKVÖLD, SAMA HVAR ÞAÐ VERÐUR OG ÞVÍ ER SÍÐASTI SÉNS AÐ HITTAST, ÞAÐ ER ÞVÍ EINS GOTT FYRIR YKKUR AÐ MÆTA !! =)

 

endilega látið í ykkur heyra hérna og upplýsingar verða birtar um leið og þær finnast !!  

» 11 hafa sagt sína skoðun

25.03.2007 14:32:56 / diffrun

Endurvakning?

Eigum við að reyna að endurvekja þessa síðu. Mér þætti allavega gaman að geta fylgst með ykkur áfram eftir útskrift. Ef þið hafið gleymt lykilorðinu á síðuna, þá getið þið sent mér mail á hallajons@gmail.com og þið fáið það sent um hæl :D

 Hallan kveður... (nóg af verkefnum sem á að gera víst...)


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.03.2006 21:44:44 / diffrun

Bekkjardjamm!!!

Sveitaball það jafnast ekkert á við sveitaball..... ;)
Langar að minna fólk á SVEITABALL í Hlíðarbæ 31. mars. Hljómsveitin Lego spilar fyrir balli, eðal sveitaballahljómveit. Rúta og ball aðeins 500kall. Rúta fer frá Oddellow kl. 23:00 og frá Hlíðarbæ kl. 3:30

Já að ógleymdu partýi hjá Sillu og Lilju!!! Fjölmennum öll og sýnum sannan bekkjaranda!!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.03.2006 12:05:43 / diffrun

Diffrun hvað?

Ussuss, það skrifar enginn á þessa blessuðu síðu, hnuss, hnuss, hneyksli!! :haha:  Við Elín erum að gera helling skemmtilegt hérna í Kolding. Í morgun fórum við í kick box í vatni, það var einkar hressandi iðja. Svo erum við alltaf í einhverjum gönguferðum og umræðum um hvað við getum gert með börnum í náttúrunni og hvernig við getum hvatt þau til að hreyfa sig meira og eitthvað svoleiðis. Svo þarf maður nú að lesa einhvern slatta af greinum alltaf og erum komnar í gang með eitt hópverkefni með 2 öðrum...þær reyna sitt besta til að skilja okkur og gera sig skiljanlegar, það gengur svona skítsæmilega bara. Svo tökum við eitthvað svona verkefni/próf, semsagt gerum verkefni sem við þurfum síðan að útskýra munnlega fyrir kennurunum. Svo þegar það er búið förum við í annan áfanga...sem reyndar er ekki alveg ákveðið hvað verður, hmm, bara svona surprice eitthvað. :haha: En jæja, við söknum ykkar allavega, þó það sé gaman hjá okkur. Vonandi gengur öllum vel þarna, bæó, spæó, Halla Jóns!!

» 2 hafa sagt sína skoðun

27.01.2006 11:30:32 / diffrun

Vísindaferð til Reykjavíkur!!!!

Jæja bekkjarfélagar nú er komið að því að fara í vísindaferð til Reykjavíkur!!! Allir sem ekki fóru í fyrra eru nánast skildaðir til að koma með núna :klikk: Þetta verður heljarinnar fjör, lagt verður af stað á fimmtudaginn klukkan þrjú frá Sólborg, gist verður á Hótel Cabin og verða tveir saman í herbergi...á föstudeginum verður svo heimsóttur einn grunnskóli og einn leikskóli og farið í búðir :D Um kvöldið mun HR líklegast bjóða okkur í teiti :haha: svo verður auðvitað tjúttað fram á nótt!! Á laugardeginum verður frjáls tími til 17 eða 18?? En þá verður farið í stóra vísindaferð og síðan út að borða...um kvöldið verður svo djammað að hætti íslendinga, fram á rauða nótt 8)

» 1 hafa sagt sína skoðun

07.12.2005 11:56:04 / diffrun

Arnar á afmæli í dag :)

Til hamingju með afmælið Arnar :D Gangi þér vel í prófunum:!:

» 1 hafa sagt sína skoðun

27.10.2005 13:27:44 / diffrun

HALLÓ-VÍN

JÆJA HVERNIG ER ÞAÐ... ÉG ER BÚIN AÐ HEYRA AÐ ÞAÐ SÉ ÞVÍLÍKA STEMMNINGIN Í BEKKNUM FYRIR VÍSÓ OG HALLÓ-VÍN, Í BEKKNUM !!! HVERNIG VÆRI AÐ SEGJA FRÁ ÞVÍ Í HVERJU ÞIÐ ÆTLIÐ AÐ VERA, SVO ÞAÐ MÆTI NÚ EKKI ALLIR EINS ;) EÐA HVAÐ???

............................... LYFTA SÉR AÐEINS UPP OG LÍTA SVONA EINU SINNI YFIR VETURINN UPP ÚR SKÓLABÓKUNUM HA !! OG REYNA AÐ HITTA FÓLK !!

 ;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

28.09.2005 13:13:07 / diffrun

LES

Voandi gengur öllum lestrar og skriftar nemum vel með verkefni morgundagsins... Æðilslegt samt þegar það verður búið :) Þá er hægt að byrja á næsta verkefni!


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.09.2005 14:03:37 / diffrun

Fyrsta bekkjarpartý vetrarins!

Bekkjarpartý hjá Herdísi og Siggu á föstudagskvöld!!!
Staður: Drekagil 21, íbúð 703 (7.hæð) ATH: það er lyfta á staðnum!!
Stund: 20:30:31:05
Klæðnaður: Síðkjólar og kjólföt...eða bara eitthvað annað að eigin vali :D
Með í för: Söngvatn að eigin vali eða aðrar veigar
Á staðnum: Græjur, tónlist, plastglös, snakk og WC-pappír

Rock on!!! 8)

» 2 hafa sagt sína skoðun

26.08.2005 14:19:38 / diffrun

Dátinn í kvöld

Í kvöld er bekknum boðið í frían bjór og skemmtun á Dátanum, fjörið hefst klukkan 19:45 og síðan verður Drekktu betur keppnin haldin klukkan 21:30 og þá munu allar aðrar deildir koma saman og hittast í Sjallanum og keppa í hver drekkur mest!!! :D

Endilega skellið ykkur í frían bjór í boði Magister                                            Kveðja Herdís


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.06.2005 15:10:50 / diffrun

Nýtt barn

Vildi bara láta fólk vita að Petru og Sindra fæddist 15 merku dóttir fimmtudaginn 9. júní. Við óskum þeim auðvitað innilega til hamngju með þetta :) Endilega kíkið á síðuna þeirra!

» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
fyrir þá sem hafa ekkert betra að gera
bekkjarfélagar og fleiri vinir